Vefsíðugerð sem styður við markmið fyrirtækisins

Ég byggi vefsíður fyrir fyrirtæki með áherslu á skýra uppbyggingu, notendaupplifun, hraða og traustan tæknilegan grunn. Markmiðið er ekki bara að setja eitthvað á netið, heldur að skapa vef sem styður við traust, fyrirspurnir og áframhaldandi vöxt.

Vefsíðugerð · Vefhönnun · WordPress · SEO grunnur
Vefsíðugerð fyrir fyrirtæki með skýrri uppbyggingu og góðum tæknilegum grunni

Af hverju skiptir góð vefsíðugerð máli?

Vefsíða á að hjálpa fyrirtækinu að koma þjónustu sinni skýrt á framfæri, auðvelda notendum að skilja næsta skref og skapa traustan grunn fyrir sýnileika í Google.

Ég lít því ekki á vefhönnun sem útlitsverkefni eitt og sér. Vefsíðan þarf líka að vera hröð, skýr, auðveld í notkun og byggð þannig að hægt sé að þróa hana áfram.

  • Skýr uppbygging og skýr skilaboð
  • Hraði og tæknilegur grunnur sem heldur vel
  • Undirstaða fyrir SEO og áframhaldandi efnisvinnu
  • Lausn sem fyrirtækið getur unnið áfram með

Hvað felst í vefsíðugerð?

Skipulag og efnisuppbygging

Ég skipulegg síðuna þannig að notendur skilji fljótt hvað fyrirtækið býður og hvert næsta skref er.

Vefhönnun sem styður við innihald

Útlit og framsetning eiga að hjálpa efninu, ekki flækja það. Skýr framsetning skiptir meira máli en skraut.

WordPress þegar það hentar

Ég vinn oft í WordPress þegar það er skynsamleg lausn fyrir verkefnið og þegar fyrirtækið þarf sveigjanlegan og auðstýrðan vef.

Hraði og tæknilegur grunnur

Ég legg áherslu á að síðan sé létt, hraðvirk og byggð á traustum tæknilegum grunni.

SEO grunnur

Titlar, headingar, uppbygging og innri tengingar þurfa að styðja við sýnileika frá byrjun.

Sjá SEO þjónustu

Viðhald og áframhaldandi þróun

Eftir að vefurinn fer í loftið get ég séð um viðhald, umbætur og áframhaldandi þróun eftir þörfum.

Sjá viðhald

Ferlið frá hugmynd að vefsíðu

Ég byrja á því að fara yfir stöðuna, markmiðin og hvað þarf raunverulega að byggja upp. Síðan vinn ég verkefnið í skýrum skrefum.

  1. Greining - ég fer yfir markmið, efni, þjónustu og þarfir notenda.
  2. Skipulag - uppbygging síðna, efnisflæði og meginboð skilgreind.
  3. Hönnun og uppsetning - vefurinn byggður með skýrri framsetningu og tæknilegum grunni.
  4. Yfirferð - prófanir, lagfæringar og lokaútfærsla áður en vefurinn fer í loftið.
  5. Áframhaldandi vinna - viðhald, SEO eða frekari þróun eftir því sem hentar.
Sjá ferlið

Algengar spurningar um vefsíðugerð

Hver er munurinn á vefsíðugerð og vefhönnun?

Vefhönnun snýst meira um framsetningu og útlit. Vefsíðugerð nær líka yfir uppbyggingu, tæknilegan grunn, hraða og það hvernig síðan virkar í heild.

Get ég fengið verðmat áður en verkefnið byrjar?

Já. Eftir stutta yfirferð get ég gefið þér skýrari mynd af umfangi verkefnisins og hvað líklegt er að það kosti.

Vinnur þú í WordPress?

Já, oft þegar það hentar verkefninu. WordPress getur verið mjög góð lausn fyrir fyrirtæki sem vilja sveigjanlegan og auðstýrðan vef.

Geturðu unnið með núverandi vef?

Já. Stundum er nóg að bæta uppbyggingu, hraða eða efni. Í öðrum tilvikum er betra að byggja nýjan grunn.

Hversu langan tíma tekur vefsíðugerð?

Það fer eftir umfangi verkefnisins. Minni verkefni geta farið hraðar í gegn en stærri vefir þurfa yfirleitt meiri undirbúning og fleiri yfirferðir.

Getur síðan stutt við SEO?

Já. Ég byggi vefinn þannig að hann hafi góðan grunn fyrir SEO, bæði hvað varðar uppbyggingu, headingar, titla og innri tengingar.

Get ég bætt við netverslun síðar?

Já, í mörgum tilfellum er hægt að þróa vefinn áfram og bæta við netverslun eða öðrum virkni síðar.

Sérðu líka um viðhald eftir að síðan fer í loftið?

Já. Ég get einnig séð um viðhald, uppfærslur og áframhaldandi umbætur eftir að verkefninu lýkur.

Viltu fá mat á vefnum eða nýju verkefni?

Ég get farið yfir stöðuna og lagt til hvað skiptir mestu máli að gera næst.