Fonsi SEO Tools

Ókeypis SEO greining á vefsíðu

Sláðu inn vefslóð og fáðu sjálfvirka vefgreiningu. Athugaðu meðal annars indexun, title, meta description, canonical, fyrirsagnir, myndir, tengla og structured data.

100 % ókeypis Engin skráning Engir inneignarpunktar

Greiningin fer fram í rauntíma. Þú þarft ekki að stofna aðgang.

Hvað greinir þetta SEO tól?

Vefgreiningin sækir opinbert HTML frá þeirri vefslóð sem þú slærð inn og skoðar sjálfkrafa ýmis atriði sem tengjast SEO og tæknilegri uppbyggingu síðunnar.

Þú getur notað tólið til að greina SEO á vefsíðu, yfirfara síðu áður en hún fer í loftið eða athuga hvernig ákveðin atriði hafa breyst eftir uppfærslur.

  • HTTP staða, HTTPS og redirects
  • Indexun með meta robots og X-Robots-Tag
  • Title og meta description
  • Canonical
  • H1 og stigskipting H2–H6
  • Myndir og ALT attributes
  • Innri, ytri og nofollow tenglar
  • HTML tungumál og viewport
  • Open Graph og Twitter / X Cards
  • JSON-LD structured data
  • Tölfræði um efni, myndir og tengla

Hvernig notarðu vefgreininguna?

Það tekur aðeins nokkur skref að framkvæma SEO greiningu á vefsíðu.

1. Sláðu inn vefslóð

Skrifaðu vefslóð síðunnar sem þú vilt greina. Þú getur slegið hana inn með eða án https://.

2. Keyrðu SEO greininguna

Tólið sækir opinbert HTML síðunnar og skoðar þau atriði sem hægt er að meta sjálfvirkt.

3. Skoðaðu niðurstöðurnar

Þú færð SEO Score, lista yfir atriði sem eru rétt, atriði sem má bæta og vandamál sem vert er að skoða.

4. Greindu síðuna aftur

Eftir breytingar geturðu keyrt sömu vefslóð aftur og athugað hvort niðurstöðurnar hafi breyst.

Hvað þýðir SEO Score?

SEO Score er leiðbeinandi einkunn frá 0 til 100 sem byggir eingöngu á þeim sjálfvirku athugunum sem þetta tól framkvæmir.

Atriðin hafa ekki öll sama vægi. Til dæmis hafa indexun, HTTP staða, title og canonical meiri áhrif á einkunnina en sumar minni tæknilegar athuganir.

Ef alvarlegt vandamál finnst getur hámarkseinkunn síðunnar einnig lækkað. Síða með noindex ætti til dæmis ekki að fá mjög háa einkunn þó mörg önnur atriði séu rétt.

Hvenær getur vefgreining verið gagnleg?

Sjálfvirk greining getur verið gagnleg sem fyrsta yfirferð þegar þú vilt skoða ákveðna vefslóð.

Áður en ný síða fer í loftið

Athugaðu hvort title, meta description, canonical, fyrirsagnir og indexun séu eins og þú ætlast til.

Eftir SEO breytingar

Keyrðu vefgreininguna aftur eftir breytingar á metadata, robots, fyrirsögnum, myndum eða structured data.

Þegar síða indexast ekki

Tólið getur fundið atriði eins og noindex, X-Robots-Tag eða canonical sem vísar á aðra vefslóð.

Við samanburð á vefsíðum

Þú getur greint opinberar síður á öðrum vefjum og skoðað hvernig mismunandi tæknileg atriði eru útfærð.

Eftir uppfærslu á vef

Breytingar á þema, viðbótum eða kóða geta stundum haft óvænt áhrif á SEO metadata og HTML uppbyggingu.

Sem fyrsta SEO yfirferð

Niðurstöðurnar geta hjálpað að finna augljós atriði áður en farið er í ítarlegri greiningu á vefnum.

Algengar spurningar um vefgreiningu og SEO checker

Hvað er vefgreining?

Vefgreining er sjálfvirk yfirferð á ákveðnum þáttum vefsíðu. Þetta tól einbeitir sér sérstaklega að SEO, HTML uppbyggingu, metadata, tenglum, myndum og öðrum tæknilegum atriðum.

Er þessi SEO checker ókeypis?

Já. Þú getur notað vefgreininguna án greiðslu og án þess að stofna notandaaðgang.

Get ég greint hvaða vefsíðu sem er?

Þú getur greint opinberar síður sem eru aðgengilegar með HTTP eða HTTPS. Sumir vefir loka eða takmarka sjálfvirkar beiðnir og því er ekki alltaf hægt að sækja HTML þeirra.

Hvað skoðar SEO greiningin?

Tólið skoðar meðal annars HTTP stöðu, HTTPS, redirects, indexun, title, meta description, canonical, fyrirsagnir, myndir, tengla, tungumál, viewport, Open Graph, Twitter / X Cards og JSON-LD.

Hvað þýðir SEO Score frá 0 til 100?

Einkunnin tekur saman niðurstöður þeirra sjálfvirku athugana sem tólið framkvæmir. Mikilvægari atriði hafa meira vægi og alvarleg vandamál geta takmarkað hámarkseinkunnina.

SEO Score er ekki einkunn frá Google og spáir ekki fyrir um stöðu í leitarniðurstöðum.

Þýðir SEO Score 100 að SEO sé fullkomið?

Nei. Einkunnin 100 þýðir aðeins að síðan hafi staðist þær athuganir sem þetta tól framkvæmir.

Hún segir ekki sjálfkrafa að efnið sé betra en hjá samkeppnisaðilum, að leitarorðin séu rétt eða að síðan muni ná góðri stöðu í Google.

Get ég greint sömu síðu aftur eftir breytingar?

Já. Þú getur keyrt sömu vefslóð aftur eftir breytingar og athugað hvort title, canonical, robots, fyrirsagnir, myndir eða önnur atriði hafi breyst.

Get ég notað tólið til að skoða aðra vefi?

Já. Ef síðan er opinber og leyfir að HTML hennar sé sótt geturðu greint hana og skoðað tæknilega uppbyggingu hennar.

Kemur þetta tól í stað faglegrar SEO vinnu?

Nei. Tólið greinir ákveðna þætti einnar vefslóðar sjálfvirkt, en það getur ekki metið alla þá þætti sem hafa áhrif á lífrænan sýnileika vefs.

Það er best notað til að finna atriði sem vert er að skoða og sem fyrsta skref áður en farið er í ítarlegri SEO vinnu.